Grillað ferskjusalat
Fyrir 4
- 4 stk ferskjur
- 2 stórir rauðlaukar
- 1 askja litlir tómatar
- 1 dós litlar mozzarella kúlur
- Basiliku lauf
- Salt og pipar
- Olivuolía
Aðferð: Skerið ferskjurnar í báta ásamt rauðlauknum. Þræðið tómatana á spjót. Penslið með olíu og kryddið með salti og pipar. Grillið á heitu grilli þar til fallegar grillrendur myndast. Setjið á disk sem þið ætlið að bera salatið fram í og raðið mozzarella og basil ofan á. Hellið smá olívuolíu yfir í lokin