Grillaðar jarðarberja og nutella tortillur

Gefðu banananum frí

Súper einfaldur og súper góður grillaður eftirréttur. Súkkulaði, jarðarber, sykurpúðar og rjómaostur í grillaðri tortillu.

  • 4 stk. hveiti tortillur
  • 4 msk. nutella
  • 4 msk. rjómaostur
  • 8 stk. jarðarber
  • Litlir sykurpúðar

Aðferð

Smyrjið hálfa tortilluna með nutella og hinn helminginn með rjómaosti. Skerið jarðarberin í tvennt og raðið þeim á rjómaosts helminginn. Raðið sykurpúðum á hinn helminginn og brjótið svo tortilluna saman. Grillið á heitu grilli í 1-2 mínútur á hvorri hlið. Gott að bera fram með ís 

Til baka